Færsluflokkur: Dægurmál
13.12.2008 | 04:09
Ja hérna, verðtryggingin bjargaði ekki þessu tapi
Eignirnar rýrnuðu um 200 milljarða | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.12.2008 | 23:18
Ég mun segja 365 upp.
Þetta er algjört rugl hjá menntó.
- Þetta mun ekkert hjálpa "Frjálsu miðlunum"
- Auglýsingamarkaðurinn afhentur JÁ ( til hvers )
- Þetta mun fækka áskrifendum 365
- Þetta mun minnka auglýsingar á sjónvarpstöðvum
- Mismunar auglýsendum ( fáir geta nýtt sér Rúv og vegna skerðingar )
- Auglýsingastofur munu fá lægri tekjur
- Það er verið að skerða samkeppni
- Það mun verða dýrara að auglýsa vegna 365 og hækka vöruverð hjá viðkomandi
Það hefði bara mátt leyfa fólki að kaupa áskrift að Rúv.
Opna sérstaka rás sem sinnir menningunni.
Ég mun segja 365 upp þar sem ég þarf að borga ca 80.000 í Rúv.
Óljóst hverju nefskattur skilar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.12.2008 | 14:57
Loksins skref í rétta átt. Til hamingju
Laun stjórnenda LV lækkuð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
12.12.2008 | 14:21
Ingibjörg fær kartöflu í skóinn frá Jólasveininum
Hún er búin að vera óþæg og bullar út í eitt. Mesta snilldin var þó að þegar hún var að verja skattahækkunina um daginn með því að þau hefðu verið búin að gefa okkur smá pening upp í skattahækkunina.
Þetta er bara lítið skref í byrjuninni á því sem koma skal frá ríkisstjórninni.
"You Ain't Seen Nothing Yet" gætu verið einkunarorðin þeirra
Hátekjuskattur bara táknrænn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.12.2008 | 18:26
Gósentíð fyrir smyglara ?
Áfengisgjald hækkað | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
9.12.2008 | 16:00
Steingrímur skipaðu, ekki skoraðu
Steingrímur skipaðu þeim að gera þetta.
Ég vil ekki heyra " Skipað gæti væri mér hlýtt "
Gögn mega ekki glatast | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.12.2008 | 11:08
Tilkynning um kaup á hlutbréfum Melkorku ehf í Glitni
Þann 29. mars 2007 barst Kauphöllinni tilkynning um að Birna hefði keypt í gegnum einkahlutafélag sitt Melkorku, sjö milljón hluti í bankanum á genginu 26,4 eða fyrir 190 milljónir króna.
Það er mín skoðun að tilkynningin til FME / Kauphallarinnar eiga að gilda. Það er það sem birtist okkur hluthöfum á markaði. Einhver innanhúsmál hjá Glitni varðandi þetta mál koma okkur ekki við. Birna trúir því að hún eigi þennan hlut og sama gerir bankinn enda bauð hann henni þessi kaup sem hluta af launum.
Dægurmál | Breytt 10.12.2008 kl. 13:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
9.12.2008 | 11:05
Melkorka ehf
Vörur / Þjónusta
Upplýsingar úr fyrirtækjaskrá
Nafn fyrirtækis:Melkorka ehfKennitala:6803070590
Aðsetur:Laufásvegi 48A
101 Reykjavík
Starfsemi:
Síðast uppfært:13.11.07
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 11:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.12.2008 | 10:57
Yfirlýsing Birnu Einarsdóttur bankastjóra Glitnis
Vegna umfjöllunar fjölmiðla síðustu daga um kaup einkahlutafélags í minni eigu á hlutabréfum í Glitni banka hf., sem reyndar aldrei voru framkvæmd, sé ég mig knúna til þess að senda frá mér yfirlýsingu til að upplýsa málið enn frekar.
Ég hef fullan skilning á þeirri tortryggni og reiði sem ríkir meðal fólks. Öll viðskipti af þessu tagi þarf að skoða ofan í kjölinn. Ég harma þá neikvæðu umfjöllun sem hinn Nýi Glitnir hefur orðið fyrir vegna þessa og þau þungu orð sem fallið hafa og snúast um persónu mína.
Atburðarásin
Þann 2. febrúar 2007 tók ég sæti í framkvæmdastjórn Glitnis banka hf. Hluti af kjörum mínum í því sambandi var kaupsamningur um kaup á hlutabréfum í bankanum, eins og tíðkaðist almennt á fjármálamarkaði á þeim tíma. Bankinn bauð mér lán til 5 ára til að fjármagna kaupin. Í samningnum fólst að ef ég hefði hætt störfum fyrir lok samningstíma bar mér að skila bréfunum og það var jafnframt tekið fram að ég myndi ekki njóta hækkunar á verði þeirra.
Ég gerði samning við bankann og tók sæti í framkvæmdastjórn. Ég stóð í þeirri meiningu að þessi viðskipti hefðu gengið í gegn, enda voru þau tilkynnt í Kauphöll. Lánið var svokallað kúlulán og átti ekki að greiðast fyrr en með einni greiðslu þann 29. mars 2012 og þá með áföllnum vöxtum og kostnaði.
Á aðalfundi Glitnis banka hf. miðvikudaginn, 20. febrúar 2008 óskaði ég eftir atkvæðisrétti fyrir félagið mitt. Þá kom í ljós að engin hlutabréf voru skráð á umrætt félag og ég fékk því ekki þann atkvæðisrétt sem ég taldi félaginu bera.
Strax um kvöldið óskaði ég eftir skýringum hjá starfsmönnum bankans. Málið var tekið til skoðunar og farið vandlega yfir alla verkferla. Hin lögfræðilega skýring sem ég fékk var að það hefði verið galli í lánasamningnum, þegar til átti að taka. Viðmið vaxta og verðbóta var ekki sami mánuðurinn og af þeim sökum gat bakvinnsla ekki skráð lánið í kerfin og voru viðskiptin því aldrei kláruð. Mér var tjáð að málið hafi verið fært til bókar hjá regluverði. Bakvinnsla vakti máls á þessu við þann sem ábyrgur var fyrir framkvæmd viðskiptanna. Þrátt fyrir það barst leiðréttur lánasamningur aldrei til bakvinnslu sem gerði það að verkum að viðskiptin gengu aldrei í gegn.
Þegar hér var komið sögu var mér tjáð að allar forsendur fyrir slíkum samningum væru brostnar. Ekki væri vilji innan bankans að standa við upphaflegan samning, enda hafði nýkjörinn stjórnarformaður boðað nýja stefnu varðandi kauprétti og árangurstengdar greiðslur til stjórnenda bankans.
Ég gerði ekki athugasemd við þá niðurstöðu. Í raun þýðir þetta að félag mitt keypti aldrei nein hlutabréf í Glitni hf. þegar upp er staðið. Mér er þó ljóst að það voru mistök bankans að leiðrétta ekki tilkynninguna í Kauphöll.
Ég hef ekkert að fela í þessu máli og upplýsti stjórnarformann bankans um málið áður en starfssamningur var undirritaður. Þá hef ég óskað eftir því við Fjármálaeftirlitið (FME) að það taki málið til skoðunar. Þegar hafa verið send gögn frá bankanum til FME vegna þessa og ég geri ráð fyrir því að stofnunin líti til þeirra í því hæfismati sem ég mun gangast undir sem bankastjóri Nýja Glitnis.
Engin launung þarf að vera í þessu máli hvorki af minni hálfu né annarra.
Virðingarfyllst,
Birna Einarsdóttir,
bankastjóri Glitnis
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 11:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.12.2008 | 00:19
Takið út innistæðurnar
Um bloggið
GAZZI11
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar